Granóla
Hráefni
- 2 dl hafrar
- 100 g graskerafræ
- 125 g kasjúhnetur (kremjaðar aðeins)
- 50 g hampfræ
- 2 msk hunang helst 100%
- 2-3 msk ólífuolía
- 1 msk kakó
Leiðbeiningar
- Stilla ofn á 180 gráður.
- Setja 2dl af höfrum í skál.
- Bæta við 100g af graskerfræjum.
- Kremja aðeins kasjúhneturnar í pokanum.
- Setja 50g af hampfræjum.
- Setja 2 msk af hunangi.
- Setja 2-3 msk af ólífolíu.
- Setja eina msk af kakói.
- Blanda öllu vel saman.
- Setja granólaið á plötu og passa að dreifa því vel á henni.
- Fara í ofn í 15 mínútur.
- Núna geturu fengið þér hollt og gott granóla í jógúrt, skyr eða grautinn þinn án þess að það séu fleiri en 30 hráefni!
Næringargildi
Fyrir allt granólaið
Orka 1500-1650 kcal
Prótein 75-80 g
Kolvetni 95-100 g
Fita 95-105g
Trefjar 18-20 g